Lýsing deiliskipulagsáætlunar fyrir Efri-Reyki lóð 2, Bláskógabyggð, skv. 2.
málsgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Almennar upplýsingar
Fyrirhugað er að að byggja upp á landinu Efri-Reykir lóð 2, landnr.221717, í Bláskógabyggð (fyrrum
Biskupstungnahreppi). Sótt verður um leyfi til stofnunar lögbýlis á lóðinni. Verkfræðistofa Suðurlands ehf.
var fengin til þess að vinna deiliskipulagstillögu fyrir svæðið.
Aðstæður á skipulagssvæðinu
Á skipulagssvæðinu, lóðinni Efri-Reykir lóð 2, er fyrirhugað að byggja íbúðarhús, gestahús og skemmu.
Lóðin er 24.693,1m² að stærð og er staðsett austan Brúarár. Enginn húsakostur er fyrir á
skipulagssvæðinu. Landið innan þess er gróið, vaxið mólendis-og mýrargróðri og hallar til norðvesturs.
Austast og þar sem landið liggur hæst er ræktað tún. Aðkoma að landinu er frá Reykjavegi nr. 355 um
aðkomuveg sem liggur um land jarðarinnar Efri-Reykja. Á meðfylgjandi mynd sést skipulagssvæðið (blá
brotalína) ásamt afstöðu byggingareita (grá brotalína) fyrir væntanlegt íbúðarhús og gestahús (B1), ásamt
skemmu (B2). Á myndinni sést einnig 50m fjarlægðarlína frá Brúará (ljósblá brotalína).
Mynd 1. Yfirlitsmynd af væntanlegu skipulagssvæði og nágrenni.
Fyrirliggjandi stefna sveitarfélagsins
Í aðalskipulagi Bláskógabyggðar (fyrrum Biskupstungnahrepps) er lóðin Efri-Reykir lóð 2 og þar með
skipulagssvæðið á skilgreindu landbúnaðarsvæði. Deiliskipulagstillagan fyrir lóðina verður í samræmi við
gildandi aðalskipulag. Hér fyrir neðan er yfirlitsmynd gildandi aðalskipulags Biskupstungnahrepps 2000-
2012 sem sýnir skilgreinda nýtingu lands að Efri-Reykjum lóð 2 og nágrenni. Skipulagssvæðið er
afmarkað á uppdrættinum, vinstra megin, með rauðri brotalínu.
Mynd 2. Yfirlitsmynd aðalskipulags Biskupstungnahrepps 2000-2012.
Fyrirhugað deiliskipulag
Byggingar - Fyrirhuguð er bygging íbúðarhúss, gestahúss og skemmu á skipulagssvæðinu. Stærð
íbúðarhússins verður allt að 180m², gestahúsið allt að 40m² og skemman allt að 300m². Mænishæð húsa
verður allt að 6 m.
Aðkoma - Frá Reykjavegi nr. 355 um aðkomuveg sem liggur um land jarðarinnar Efri-Reykja. Kvöð er
um umferðarrétt fyrir lóðina Efri-Reyki lóð 2 um þennan aðkomuveg.
Veitur - Byggingar á skipulagssvæðinu munu tengjast inn á rafveitukerfi Rarik. Neysluvatn kemur frá
einkaveitu Efri-Reykja, sem fær vatn ofan af Hrúthagaheiði, innan við Hrútá. Heitt vatn mun koma frá
einkahitaveitu Efri-Reykja, sem staðsett er vestan bæjarhúsa á jörðinni. Fráveituvirki verður staðsett
innan lóðarinnar Efri-Reykja lóð 2, austan væntanlegs íbúðarhúss.
Fornleifar - Minjastofnun Íslands verður sendur uppdráttur af skipulagssvæðinu og óskað
eftir umsögn
stofnunarinnar um væntanlegar framkvæmdir.
Tengsl við aðrar áætlanir
Lóðin Efri-Reykir lóð 2 er ekki á deiliskipulögðu svæði. Deiliskipulagsáætlun þessi hefur ekki áhrif á
skipulag lóða umhverfis skipulagssvæðið þar sem næstu nágrannalóðir/-jarðir eru ekki deiliskipulagðar.
Skipulagsferli - kynning og samráð
Landeigandi og skipulagsráðgjafi leggja áherslu á gott samstarf við nærliggjandi landeigendur,
sveitarstjórn og skipulagsyfirvöld. Sveitarstjórn Bláskógabyggðar mun sjá um kynningarferli lýsingar sem
og deiliskipulags sem verður svo auglýst skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Ferlið er eftirfarandi:
Lýsing deiliskipulagsáætlunar:
-
Samantekt lýsingar og meðferð skipulagsnefndar Bláskógabyggðar
-
Samráð við Skipulagsstofnun
-
Afgreiðsla sveitarstjórnar á lýsingu deiliskipulagsáætlunar
-
Almenn kynning á lýsingu
-
Úrvinnsla eftir kynningu
Deiliskipulag:
-
Tillaga að deiliskipulagi, uppdráttur og greinargerð
-
Tillaga lögð fyrir skipulagsnefnd
-
Tillaga fyrir sveitarstjórn til samþykktar
- Umsögn
Skipulagsstofnunar
- Umsögn
Vegagerðarinnar
- Umsögn
Minjastofnunar
- Umsögn
Heilbrigðiseftirlits
-
Auglýsing tillögu að deiliskipulagi (6 vikur)
- Úrvinnsla
athugasemda
- Samþykki
sveitarstjórnar
-
Samþykkt tillaga send Skipulagsstofnun til athugunar og staðfestingar
-
Staðfesting deiliskipulags með auglýsingu í Stjórnartíðindum
Selfossi 16. september 2013
María Bjarnadóttir
Verkfræðistofu Suðurlands