Það gera þetta allir!
Ofmat nemenda í 10. bekk grunnskóla á tíðni daglegra reykinga
meðal jafnaldra
Inngangur
Á undanförnum árum hefur náðst góður árangur við að draga úr
reykingum ungs fólks á Íslandi. Tíðni daglegra reykinga meðal nemenda í
10. bekk grunnskóla hefur frá árinu 1995 lækkað úr 21% í 11% árið 2007
(sjá mynd 1).
Fjöldi rannsókna benda til þess að flest reykingafólk byrji að reykja á
unglingsárunum
[1]
og því yngra sem fólk er þegar það byrjar að reykja því
erfiðara er að hætta því seinna. Enn fremur hafa komið fram sterkar
vísbendingar um að heilsutjón af völdum reykinga á fullorðinsárum aukist
eftir því sem einstaklingar byrja fyrr að reykja
[1]
.
Þrátt fyrir að dregið hafi úr reykingum er enn afar mikilvægt að skoða
sérstaklega þá þætti sem tengjast því hvort unglingar byrji að reykja eða
ekki. Nýlegar erlendar rannsóknir
[2]
hafa sýnt að einn þessara þátta er
ofmat unglinga á reykingum annarra. Hér er skoðað hvort það sama eigi
við um íslenska unglinga.
Mynd 1. Hlutfall nemenda í 10. bekk grunnskóla sem reykja daglega
Mynd 3. Mat nemenda í 10. bekk, sem reykja ekki, á tíðni daglegra
reykinga meðal jafnaldra
Mynd 4. Mat nemenda í 10. bekk, sem reykja daglega, á tíðni daglegra
reykinga meðal jafnaldra
Mynd 2. Hlutfall nemenda í 10. bekk grunnskóla sem ofmeta tíðni daglegra
reykinga meðal jafnaldra sinna, út frá reykingavenjum
20,8
18,6
13,6
11,1
0
10
20
30
40
50
1995 1996 1997 1998 1999 2000 2001 2002 2003 2004 2005 2006 2007
Hl
utfal
l ne
me
n
d
a
(%
)
Mat nemenda í 10.
bekk á tíðni daglegra
reykinga hjá
jafnöldrum (meðaltal)
32%
Jón Óskar Guðlaugsson, Margrét Valdimarsdóttir, Stefán Hrafn Jónsson, Sveinbjörn Kristjánsson og Héðinn S. Björnsson
Niðurstöður
Þegar úrtakið er skoðað í heild kemur í ljós að um 70% ungmenna ofmeta
hlutfall jafnaldra sem reykja daglega (sjá mynd 2). Þegar skoðaðar eru
sérstaklega niðurstöður fyrir þá sem reykja daglega og þá sem ekki reykja
er athyglisvert að sjá að tveir þriðju (67%) þeirra sem ekki reykja ofmeta
hlutfall daglegra reykinga meðal jafnaldra (sjá mynd 3). Af þeim sem
reykja daglega ofmeta hins vegar níu af hverjum tíu (90%) hlutfallið (sjá
mynd 4).
Nemendur í 10. bekk grunnskóla telja að meðaltali að 32% jafnaldra
sinna reyki daglega (sjá mynd 1). Að meðaltali telja þeir sem reykja ekki
að um 30% jafnaldra sinna reyki daglega. Þeir sem reykja daglega telja
hlutfallið hinsvegar vera að meðaltali 47%.
Umræða
Rannsóknir hafa sýnt að því meira sem unglingar ofmeta tíðni reykinga
þeim mun líklegri eru þeir til að reykja sjálfir. Því er mikilvægt að ungt
fólk sé upplýst um raunverulega útbreiðslu reykinga, að reykingar séu
ekki eitthvað sem „allir gera
“
. Hér ber þó að hafa í huga að það er ekki
víst að ofmat á reykingum jafnaldra ýti undir reykingar unglinga. Ef til vill
eru unglingar sem þegar reykja líklegri til að yfirfæra sína eigin reynslu á
aðra unglinga. Þar af leiðandi telja þeir frekar að aðrir unglingar reyki.
Heimildir
[1]
Sjá í Stefán Hrafn Jónsson, Þóroddur Bjarnason, Inga Dóra Sigfúsdóttir, Bryndís Björk Ásgeirsdóttir, Jón Sigfússon. (2003).
Vímuefnaneysla íslenskra unglinga 2003. Reykjavík. Rannsóknir og greining.
[2]
BA Primack, GE Switzer og MA Dalton. (2007) Improving Measurement of Normative Beliefs Involving Smoking Among
Adolescents. Arch Pediatr Adolesc Med., 161(5): 434‐439.
Gögn
Rannsóknin byggir á gögnum úr spurningalistakönnun (ESPAD) sem lögð
var fyrir nemendur í 10. bekk vorið 2007. Heildarfjöldi þátttakenda var
3.678 (81,8% svarhlutfall). Könnuninni var stýrt frá Háskólanum á Akureyri
og unnin í samvinnu við Lýðheilsustöð.
Nemendur í 10. bekk grunnskóla telja að meðaltali að 32% jafnaldra sinna
reyki daglega (sjá mynd 1). Þeir sem reykja ekki telja að meðaltali að um
30% jafnaldra sinna reyki daglega. Þeir sem reykja daglega telja hlutfallið
hinsvegar vera að meðaltali 47%.
Útgefið af Lýðheilsustöð, maí 2008
0,4
1,9
3,9
7,0
19,8
22,1
20,6
0,6
11,1
12,6
0
5
10
15
20
25
0‐9%
10‐19% 20‐29% 30‐39% 40‐49% 50‐59% 60‐69% 70‐79% 80‐89% 90‐100%
Hl
u
tf
al
l ne
menda
(%
)
7% nemenda í 10. bekk, sem
reykja ekki, telja að 50‐59%
jafnaldra sinna á öllu landinu
reyki daglega
Ofmat: Flestir nemendur sem reykja ekki
(67%) ofmeta tíðni daglegra reykinga
meðal jafnaldra sinna
Staðan: 11% nemenda í
10. bekk reykja daglega
4,3
18,3
2,8
5,9
14,0
16,0
15,5
9,2
8,1
5,9
0
5
10
15
20
25
0‐9%
10‐19% 20‐29% 30‐39% 40‐49% 50‐59% 60‐69% 70‐79% 80‐89% 90‐100%
Hl
ut
fa
ll
n
emenda
(%
)
9% nemenda í 10. bekk, sem
reykja daglega, telja að 60‐69%
jafnaldra sinna á öllu landinu
reyki daglega
Staðan: 11% nemenda í
10. bekk reykja daglega
Ofmat: Langflestir nemendur sem reykja
daglega (90%) ofmeta tíðni daglegra reykinga
meðal jafnaldra sinna
66,7
83,3
89,8
0
10
20
30
40
50
60
70
80
90
100
Af þeim sem reykja ekki
Af þeim sem reykja sjaldnar
en daglega
Af þeim sem reykja daglega
Hlu
tf
all
nemen
d
a
(%)
sem
of
m
etur
tíð
n
i re
yk
in
ga
70% allra nemenda í
10. bekk ofmeta
umfang daglegra
reykinga meðal
jafnaldra sinna