125. löggjafarþing 1999–2000. Þskj. 624 — 368. mál. Tillaga til þingsályktunar



Yüklə 25,65 Kb.
Pdf görüntüsü
tarix21.01.2017
ölçüsü25,65 Kb.
#6096

 

 

125. löggjafarþing 1999–2000.



Þskj. 624  —  368. mál.

Tillaga til þingsályktunar

um að smásala á tóbaki verði háð leyfisveitingu.

Flm.: Þuríður Backman, Bryndís Hlöðversdóttir, Einar K. Guðfinnsson,

Jón Kristjánsson, Margrét K. Sverrisdóttir.

Alþingi ályktar að í heilbrigðisreglugerð verði ákvæði um sérstakt skilyrt leyfi til að selja

tóbak.


G r e i n a r g e r ð .

Skaðsemi tóbaks er óumdeild. Þrátt fyrir að nokkuð hafi dregið úr tóbaksnotkun á undan-

förnum áratugum, ekki síst vegna mikils og markviss áróðurs, eru reykingar engu síður al-

gengar eins og fram hefur komið í fjölda kannana. Kannanir hafa einnig sýnt að reykingar

barna og unglinga færast í aukana og færast neðar í aldurshópa, einkum hjá ungum stúlkum.

Samkvæmt nýjum upplýsingum Tóbaksvarnanefndar má ætla að íslenskir grunnskólanem-

endur hafi varið liðlega 110 millj. kr. til tóbakskaupa árið 1999. Öll sú tóbakssala er ólögleg,

enda er bannað samkvæmt lögum nr. 74/1984, sbr. 8. gr. laga nr. 101/1996, að selja fólki

undir 18 ára aldri tóbak. Af þessum 110 millj. kr. má ætla að nemendur í 8. bekk, 13 ára, hafi

keypt sígarettur fyrir rúmlega 12 millj. kr. Því yngri sem unglingar byrja að reykja, þeim mun

háðari verða þeir tóbaki og því líklegra er að þeir reyki sem fullorðnir. Því yngri sem ein-

staklingur er þegar hann byrjar að reykja, þeim mun líklegra er einnig að hann hljóti af alvar-

legan heilsufarslegan skaða. Yfir 80% allra reykingamanna byrja að reykja áður en þeir ná

18 ára aldri.

Þá er þess einnig að geta að talin er sterk fylgni milli tóbaksreykinga ungmenna og hættu

á að þeir leiðist út í neyslu annarra og enn hættulegri vímuefna. Því hefur verið haldið fram

að takist að koma í veg fyrir að unglingar reyki eða neyti áfengis eru nánast engar líkur til

þess  að  þau  ánetjist  sterkari  fíkniefnum.  Samkvæmt  ársskýrslu  frá  SÁÁ  reykja  yfir  95%

þeirra sem leita sér aðstoðar vegna áfengisvandamála og er næsta fátítt að sá sem verður

eiturlyfjum að bráð reyki ekki. Því er ljóst að mikils er um vert að allra leiða sé leitað til þess

að draga úr reykingum almennt og þó sérstaklega reykingum barna og unglinga.

Í upplýsingum frá Tóbaksvarnanefnd, sem birtar voru í janúar árið 2000, kemur fram að

u.þ.b. 26,6% Íslendinga á aldrinum 18–69 ára reyki daglega, en það er um fjórðungur Íslend-

inga á þessum aldri. Notkun vindlinga er langalgengust, eða 74,6% í hópi þeirra karla sem

reykja og 96,6% í hópi kvenna sem reykja.

Af því sem hér hefur verið rakið má ráða að með því að draga úr möguleikum — einkum

unglinga — til að nálgast tóbak væri stórt skref stigið í þá átt að draga úr reykingum barna

og unglinga. Af könnunum sem gerðar hafa verið m.a. í Reykjavík og nágrenni má ráða að

í u.þ.b. 70% tilvika geti unglingar undir 18 ára aldri keypt sígarettur í verslunun og söluturn-

um. Víða vantar því mikið á að verslanir sem selja tóbak framfylgi lagaákvæðum um bann

við  sölu  þess til þeirra sem eru yngri en 18 ára. Leiða má líkur að því að ef sölustöðum


 

2

 



 

tóbaks fækkaði yrði mikilvægt skref stigið til þess að draga úr reykingum unglinga. Samhliða

leyfisskyldu á smásölu tóbaks þyrfti að auka eftirlit til muna, en það er tæplega nokkurt eins

og málum er háttað nú.

Í skoðanakönnun sem Hagvangur gerði fyrir Tóbaksvarnanefnd árið 1999 kom fram að

meiri hluti fólks (56%) er mjög hlynntur eða frekar hlynntur því að fækka sölustöðum tóbaks.

Athyglisvert er að sjá að rúmlega 43% þeirra sem reykja daglega eru hlynntir því að sölu-

stöðum verði fækkað.

Þingsályktunartillögur um sama efni og hér er fjallað um hafa verið fluttar á undanförnum

þingum. Þær hafa ekki hlotið brautargengi þrátt fyrir að augsýnilega sé þörf róttækra úrræða

til að stula að því að lagaákvæðum um sölu tóbaks verði framfylgt.

Hér er farin sú leið að leggja til að í heilbrigðisreglugerð, sem nú er unnið að, verði sett

ákvæði um að til þess að selja tóbak þurfi sérstakt leyfi. Lagt er til að leyfi til tóbakssölu

verði tímabundið, t.d. til þriggja ára í senn, en skilgreind ákveðin viðurlög ef um brot á regl-

unum er að ræða. Þá sé einnig skýrt að leyfi til tóbakssölu verði ekki endurnýjað ef sannað

er að brotið hafi verið verulega eða ítrekað gegn lagaákvæðum um sölu tóbaks.



Yüklə 25,65 Kb.

Dostları ilə paylaş:




Verilənlər bazası müəlliflik hüququ ilə müdafiə olunur ©azkurs.org 2024
rəhbərliyinə müraciət

gir | qeydiyyatdan keç
    Ana səhifə


yükləyin