Morgunblaðið, 09.11.2016, síðu 4
grein stærð: 563.61 sm2
grein hæð: 27.09 sm
Lón og hótel fyrir milljarða
b
Þróunarfélagið Reykir ehf. áformar byggingu baðlóns og 100 herbergja hótels á
Efri-Reykjum í Biskupstungum
b
Rétt við Gullna hringinn
b
Skapar 70-100 störf
SVIÐSLJÓS
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Áform eru uppi um byggingu baðlóns
og hótels á Efri-Reykjum í Bisk-
upstungum, um miðja vegu á milli
Laugarvatns og Úthlíðar. Hugmynd-
irnar voru kynntar á fundi sveit-
arstjórnar Bláskógabyggðar á dög-
unum og samþykkt að gera ráð fyrir
þeim í endurskoðun á aðalskipulagi
sveitarfélagsins.
Samkvæmt fundargerð sveit-
arstjórnar er fyrirhugað að byggja
um tvö þúsund fermetra baðlón/laug í
landi Efri-Reykja, rétt við Brúará,
Reykjaveg og Laugarvatnsveg,
ásamt þjónustubyggingu og 100 her-
bergja hóteli, aðstöðuhúsi fyrir
starfsmenn og möguleika á stækkun
hótelsins. Þjónustubyggingin yrði
3.500-4.000 fermetrar, hótelið 5.500-
6.000 fermetrar og stækkunarmögu-
leikar á 3.000-4.000 fermetrum. Að-
stöðuhús fyrir starfsmenn yrði 400-
500 fermetrar að flatarmáli, ef af
þeim framkvæmdum verður.
Áhersla á umhverfismálin
„Í ljósi umfangs og staðsetningar
„Í ljósi umfangs og staðsetningar
framkvæmdanna telur sveitarstjórn
Bláskógabyggðar að huga þurfi sér-
staklega vel að umhverfisáhrifum
m.a. fráveitu. Skipulagsnefnd vísaði
málinu til umræðu í sveitarstjórn.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar gerir
ekki athugasemdir við fyrirliggjandi
hugmyndir og samþykkir að gera ráð
fyrir þessari uppbyggingu í endur-
skoðuðu aðalskipulagi Bláskóga-
byggðar. Sveitarstjórn leggur
áherslu á að framkvæmdaaðilar hugi
vel að umhverfisáhrifum m.a. fráveitu
og fjarlægð frá Brúará,“ segir í fund-
argerð sveitarstjórnar.
Þróunarfélagið Reykir ehf. er með
þessi áform. Forsvarsmenn félagsins
mættu til fundar við sveitarstjórn og
kynntu verkefnið; þeir Kristján B.
Ólafsson rekstrarhagfræðingur,
Rúnar Gunnarsson á Efri-Reykjum,
Örn Jóhannsson, Orri Árnason, arki-
tekt hjá Zeppelin, og Jóhannes Lofts-
son, byggingarverkfræðingur hjá
Verkís.
Reynir Kristinsson hjá REK-
ráðgjöf hefur unnið fyrir þróun-
arfélagið. Hann segir hugmyndir um
frekari nýtingu jarðhitans á Efri-
Reykjum hafa verið uppi í mörg ár.
Um sé að ræða eitt stærsta lág-
hitasvæði landsins, með mikla nýting-
armöguleika. Vatnið sem kemur upp
úr jörðinni er um 140 gráðu heitt.
Reynir segir hugmyndirnar á
seinni árum hafa þróast út í baðlón og
hótel, ásamt tilheyrandi þjónustu við
ferðamenn. Svæðið sé við alfaraleið á
Gullna hringnum svonefnda, mitt á
milli Þingvalla og Geysis, og bjóði
upp á gríðarleg tækifæri.
Aðspurður segir Reynir að verk-
efnið geti tekið einhver ár. Fyrst
þurfi að huga að skipulagsmálum og
fá samþykki sveitarfélagsins, en
breyta þarf bæði aðal- og deiliskipu-
lagi.
Þörf á meiri afþreyingu
Fjármögnun meðal innlendra fjár-
festa er hafin, en að sögn Reynis er
heildarfjárfesting verkefnisins áætl-
uð 5-6 milljarðar króna. Starfsemin á
Efri-Reykjum gæti skapað 70-100
störf.
„Það er búið að huga mjög vel að
fráveitumálum og öðrum umhverfis-
málum. Þarna er góður aðgangur að
heitu vatni og reiknað er með að það
fari í hringrás. Við munum leggja
mikla áherslu á það, í samráði við
Bláskógabyggð, að huga vel að um-
hverfisáhrifunum,“ segir Reynir.
Hann telur að miðað við umferð á
svæðinu, fjölda sumarhúsa og fjölgun
ferðamanna á næstu árum sé gott
pláss á markaðnum fyrir baðlón og
hótel á þessum stað. Þörf sé á frekari
afþreyingu við Gullna hringinn, þann-
ig að öll umferðin beinist ekki ein-
göngu til Geysis og Gullfoss.
Að sögn Reynis verður verkefnið
unnið í áföngum, fyrst byrjað á bað-
lóninu og tilheyrandi aðstöðu og síðan
ráðist í byggingu hótelsins.
Teikningar/Zeppelin arkitektar
Efri-Reykir
Svona gæti svæðið litið út á Efri-Reykjum þegar búið er að byggja hótel og baðlón, ásamt þjónustubygg-
ingu og aðstöðuhúsi, og koma upp gróðri. Hér er horft upp Biskupstungur til norðurs, í átt að Geysi og Gullfossi.
Lón og hótel fyrir milljarða
Heilsulind
Ferðamenn munu geta slakað á í baðlóninu á Efri-Reykjum.
Lón og hótel fyrir milljarða
Hótel
Fyrstu teikningar sýna hótelið lágreist og fellur það vel í landslagið.